Frænka fer erlendis

Tuesday, February 27, 2007

Stundum er krúttlegt að búa úti á landi...

..þetta var að detta inn um lúguna

Skyggnilýsingafundur

Skyggnilýsingarfundur verður haldinn í samkomuhúsinu Borgarnesi sunnudaginn 4. mars kl 20:30. Aðgangseyrir kl 1.500 - ágóði rennur til líknarmála.

Lionsklúbburinn Agla

einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að ég fengi ekki svona dreifimiða í Reykjavík eða úti í löndum, haha :)

Annars er allt gott að frétta, ef þið voruð að velta því fyrir ykkur hvort ég væri látin.. Ég er nokkuð brött í frostinu bara - með hresst í ipodnum og dúðuð frá toppi til táar næ ég að einangra mig nokkuð vel frá kuldanum.