Frænka fer erlendis

Friday, April 14, 2006

vinnandi kona


það er skemst frá því að segja að ég er komin með vinnu!

Hún felst í því að skúra bar í götunni minni 2 klst á dag. Starfið er afar hentugt, bæði því það tekur mig eina og hálfa mínútu að fara þangað og líka því það er aldrei neitt að gera á þessum bar og þess vegna eyði ég þessum 2 klst í að þrífa ekki neitt. Það er einn starfsmaður sem vinnur þarna og við mætum bæði klukkan 9; hann drekkur kaffi, les blöðin, stillir útvarpið og gengur um gólfin sem ég skúra. Fyrst velti ég því fyrir mér af hverju ég væri eiginlega ráðin þarna, en núna hef ég komist að því að ég var ráðin þangað til að halda honum félagsskap. Hann er þarna einn allan daginn greyið og þó það nú væri að hann fengi félagsskap af þrífikonu svona í morgunsárið :)
Þetta er alls ekki leiðinlegt hlutverk að skemmta honum, því hann er alveg nákvæmlega eins og Dafydd Thomas úr Little Britain! Alveg satt!!
Hann er 24 ára, býr í litlu þorpi rétt fyrir utan Durham, enn heima hjá mömmu og pabba, langar ótrúlega að flytja í burtu en er ekki alveg tilbúinn, honum finnst alveg ótrúlega leiðinlegt í vinnunni og vorkennir sér gríðarmikið. Þetta veldur því að hann er svakalega fúll og með alveg ííískaldan húmor, eins og hann gerist bestur! :) Honum leist nú ekkert á mig til að byrja með og skipti sér lítið af mér en núna er þetta held ég allt að koma.. Hann er farinn að færa mér kaffi klukkan tíu og í morgun las hann upp úr slúðurblaðinu sínu fyrir mig. Hann á að kaupa dagblöðin til að hafa á barnum, en alveg síðan ég byrjaði hefur hann komið með bunka af slúðurblöðum í staðinn "I just can´t help it, every day I need me gossip!"

4 Comments:

  • Segðu við litla hommatittinn þinn, "I´m gay, get with the program!" Og strunsaðu svo framhjá með fýlusvip.:)lol

    By Blogger addibinni, at 4:51 AM  

  • heheh hann var samt lang flottastur þanna þegar þú fóst fyrst að tala við hann :D:D ehhehe

    By Anonymous Anonymous, at 12:16 PM  

  • lol! eða "You are not a gay. I am the gay. You're probably just a little bit poofy!"

    By Blogger Heidrun, at 2:57 PM  

  • Einkar skemmtilegt. Daffyd blessaður virðist eiga marga tvífara því Thelma benti mér einmitt á einn í gær. Ekki var það ómerkari maður en þjálfari Njarðvíkur. Gerði það að verkum að við skemmtum okkur stórkostlega á leiknum þrátt fyrir tap okkar manna.

    By Anonymous Anonymous, at 7:17 AM  

Post a Comment

<< Home