Frænka fer erlendis

Thursday, March 23, 2006

St. Patricks day..

Eftir 5 Guiness fékk maður svona grænan hatt - barirnir opnuðu margir kl 8:30, svo um hádegisbilið voru flestir komnir með hatt og sumir tvo. Um miðjan daginn var mikið tjútt, þegar fór að síga í kvöldmatarleitið voru bara þeir hörðustu eftir. Hressar þessar! :)

Við fórum nú ekki út á bar fyrr en seinnipartinn, og stemmingin var eins og klukkan væri 4 um nótt. Það óð gaur upp að mér og talaði og talaði með sínum sterka hreim. Ég útskýrði fyrir honum að ég skildi ekkert hvað hann væri að segja og hvort hann gæti talað aðeins hægar (já ég á enn í basli með hreiminn..) hann æstist þá allur upp og spurði hvort ég væri útlendingur. "Yes, I´m from Iceland" Grreat!! I´m also from Ireland - Cheers!!"
Frábært samtal, þar sem ég hefði líklega skilið hann örlítið betur ef ég hefði líka verið frá Írlandi

En jæja, þegar barinn lokaði kl 11, skelltum við okkur á party bátinn, sem er opinn alveg til 2! Báturinn siglir um ána sem umlykur bæinn, hring eftir hring og þar er dansgólf, bar og allt sem alvöru skemmtistaður hefur upp á að bjóða. Fín tilbreyting að fara þangað, því maður er kannski ekki alltaf í stuði til að fara heim að sofa klukkan ellefu.. mínir menn fyrir utan bátinn í 100 km langri röð, því auðvitað fara allir í bátinn þegar skemmtistaðirnir loka.

þetta var annars bara fínt party kvöld og ég er ekki frá því að við ættum að halda upp á St. Patricks day í meira mæli á Íslandi.. party bátur, ekki viss um að ég mæli með því

5 Comments:

  • ooo mig hlakkar svo til að koma til þín :D:D þetta verður geggjað ;)

    By Anonymous Anonymous, at 3:40 PM  

  • já það verður æði!! ...ekki samt halda að þú fáir að fara á barinn, hehe ;)

    By Blogger Heidrun, at 5:04 PM  

  • hehe, er litla stýrið á leiðinni til stóry systur:) Ekkert rugl Hugga min, þú verður svæfð klukkan 10 á kvöldin ;)

    En frábærir hattar, ég treysti á að þú hafir staðið þig og fengið hatt...Jaaaa?

    Frábært hvað Nezam er ljotur á þessari mynd..segðu honum endilega að ég hafi sagt þetta :D

    By Blogger Kolbrun, at 2:14 AM  

  • já, hann er ekki ánægður með þetta og hefur nú þegar lagt inn kvörtun;)

    By Blogger Heidrun, at 3:24 AM  

  • herðu herðu... ég er orðin 16 ára :D heheh

    By Anonymous Anonymous, at 4:45 PM  

Post a Comment

<< Home