Frænka fer erlendis

Friday, April 20, 2007

komin heim..

..óbrotin

helgin fer í ritgerðarsmíðar og að læra utan að söngtexta á þýsku og ítölsku.. hvernig á ég að muna þetta þegar ég skil ekki um hvað er verið að fjalla - ohh, well - kannski er þetta ekkert öðruvísi en að fara í próf í hinum ýmsu fögum og læra glósur utan af án þess að vita almennilega um hvað er verið að fjalla

allavega, kaffidrekkandi náttfatahelgi framundan - ef einhver vill vera með, þá bara mæta á svæðið

góða helgi

..já og gleðilegt sumar :)

2 Comments:

  • já ég væri sko til í að vera með þér þarna, en er nokkuð viss um að það yrði lítið lært og meiri tími færi í galsa og ofdrykkju kaffis :)

    Hlakka til að sjá þig næst ,hvenær sem það verður!

    By Blogger Kolbrun, at 2:51 PM  

  • Gleðilegt sumar mín kæra:)

    By Blogger Thelma litla, at 2:23 AM  

Post a Comment

<< Home